Nú er hægt að stofna marga greiðsluseðla í einu með nokkrum smellum.


Það er hægt að fara tvær leiðir.


Leið nr 1 er ef það á að senda greiðsluseðla á alla ógreidda í einhverju einu námskeiði.


Leið nr 2 er að smella á greiðslur flipann í vinstri stikunni og sía út það sem er ógreitt þar undir.


Leið 1


1. Smellt er á þjónustyfirlit í vinstri stikunni og svo finnið námskeiðið. Þegar þið finnið námskeiðið þá smellið þið á rauðu töluna undir ógreitt. 

Í þessu dæmi er það námskeiðið discount test og ég sé að það eru 4 ógreiddir og smelli því á töluna 4.


2.  Nú opnast gluggi þar sem ég sé þessa fjóra einstaklinga sem eiga eftir að greiða. Ég smelli á hringinn við hliðina á nafninu þeirra og fer í breyta og vel stofna greiðsluseðil.



3. Næst opnast gluggi þar sem þið veljið:


  • Auðkenni greiðsluseðils
  • Gjalddagi/Eindagi
  • Number of payments. Ef einn er valinn þá er sendur einn greiðsluseðill en ef valið er t.d þrír þá eru sendir þrír greiðsluseðlar
  • Greiðandi - Hérna er valinn greiðandi. Það er alltaf hægt að stimpla inn kennitölu greiðanda.


Þegar búið er að fylla allt rétt út er smellt á Stofna.



Leið 2


1. Smellt er á "greiðslur" flipann í vinstri stikunni. Svo er valið reikningar, rétt tímabil og svo smellt á síur.



2. Þegar smellt er á síur þá opnast þessi valmynd. Þar er hægt að leita niðrá deild, þjónustu og stöðu. Mikilvægt er að velja staða: ógreitt.S vo er smellt á leita.



3. Nú opnast gluggi þar sem allir ógreiddir birtast í námskeiðinu discount test. Til að senda á greiðsluseðla alla í einu er smellt á hringinn og valið breyta og stofna greiðsluseðil.


4.  Næst opnast gluggi þar sem þið veljið:


  • Auðkenni greiðsluseðils
  • Gjalddagi/Eindagi
  • Number of payments. Ef einn er valinn þá er sendur einn greiðsluseðill en ef valið er t.d þrír þá eru sendir þrír greiðsluseðlar
  • Greiðandi - Hérna er valinn greiðandi. Það er alltaf hægt að stimpla inn kennitölu greiðanda.

  Þegar allt er útfyllt er ýtt á stofna.