Hérna má sjá leiðbeiningar hvernig þú kaupir þjónustu í vefverslun.

  1. Fyrsta skrefið er að fara á síðu félagsins www.sportabler.com/shop/"nafnfelags". Í þessu sýnidæmi er síða Sportabler félagsins notuð www.sportabler.com/shop/abler.
  2. Næst þarftu að skrá þig inn í hægra horninu uppi "Innskrá í Sportabler". Í hnettinum við hliðiná getur þú valið tungumál.



3. Ef þú ert með Sportabler aðgang nú þegar þá notar þú hann til að skrá þig inn. Ef þú ert ekki með Sportabler aðgang þá velur þú nýskrá neðst í hægra horninum. ATH mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur en ekki sem barnið þitt.





4. Ef nýskráning er valin þá þarftu að setja inn tölvupóst og kennitölu. Þegar þú smellir á Senda boð færðu staðfestingarpóst í tölvupósti og fylgir því ferli, velur lykilorð og ert þá kominn með aðgang. ATH staðfestingarpóstur gæti endað í Spam, junk eða trash í 
tölvupóstinum.





5. Ef það kemur enginn staðfestingarpóstur á netfangið hjá þér eða villuboð kemur upp þá biðjum við ykkur að hafa samband í þjónustuver Sportabler þar sem öll mál eru leyst. (Gyllta blaðran niðrí hægra horninu á sportabler.com)




6. Þegar allt er klappað og klárt þá tekur við innskráning. Þegar þú skráir þig inn ertu beðinn um að auðkenna þig.  





Í kjölfarið lendir þú inn á island.is þar sem þú getur auðkennt þig með rafrænum skilríkjum eða íslykli



7. Þegar þú lýkur við auðkenningu þá ferðu beint inn á vefverslunina og getur keypt þá þjónustu sem er í boði. ATH þetta ferli þarftu bara að ganga í gegnum einu sinni. Efst vinstra megin sérðu sjálfan þig og börnin þín og upp í hægra horninu sérðu yfirlit yfir reikninga og áskriftir sem þú hefur keypt.




8. Næsta skref er að finna þá þjónustu sem þú vilt kaupa fyrir sjálfan þig eða barnið þitt. Hægt er að nota frístundastyrk, greiðsludreifingu og systkinaafslátt í kaupferlinu en það er í höndum félagsins hvort það sé boðið upp á slíka möguleika.

Í þessu sýnidæmi hér fyrir neðan ætla ég að kaupa Haust æfingagjöld í 4.fl karla í handbolta hjá Sportabler félaginu fyrir Hlyn Kára og smelli á kaupa. 





Í þessu tilfelli er boðið upp á notkun frístundastyrks, systinaafslátts og greiðsludreifingu. (Sjá mynd fyrir neðan).


Skref 1: Velja hvaða iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir.


Skref 2: Í þessu tilfelli á Hlynur Kári rétt á 10% systkinaafslætti þar sem systir hans keypti æfingagjöld hjá sama félagi. Ef félagið sem þú verslar hjá bíður upp á systkinaafslátt þá kemur hann inn í skrefi 2 í kaupferlinu, ef enginn afsláttur er í boði kemur þetta skref ekki upp.


Skref 3: Í þessu skrefi velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki. Í þessu dæmi haka ég í ,,Já'' til þess að geta notað styrkinn. ATH þessi möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki upp á frístundastyrk.


Skref 4:  Í skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa. Í þessu dæmi á ég 54.000 kr í frístundastyrk en kýs að ráðstafa 10.000 kr af þeirri upphæð. 


Skref 5: Hérna býður Sportabler félagið upp á greiðsludreifingu. Ég vel að dreifa greiðslunum á 4 mánuði í þessu dæmi.


Skref 6 Hérna fyllir þú inn kortaupplýsingar. Hægt er að nota kredit eða debit kort.  

Hægra megin í kaupferlinu er svo kvittun sem þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk, systkinaafslætti og greiðsludreifingu.





Lokaskref- Þú smellir á ganga frá greiðslu og þá ættu kaupin að ganga í gegn og kvittun fyrir kaupunum kemur á tölvupóstinn hjá þér. Þú getur einnig séð kvittanir í reikningar efst í hægra horninu á síðunni.



Í þessu dæmi fer Hlynur Kári beint inn í 4.fl kk handbolti hjá Sportabler félaginu. 
Ef um nýskráningu er að ræða mælum við með að þú niðurhalir appinu og skráir þig inn til að geta fylgst með dagskránni og verið í samskiptum við þjálfara. Ef þú varst með aðgang fyrir kemur dagskráin sjálfkrafa í appið.