Hérna má sjá leiðbeiningar hvernig þú kaupir þjónustu í vefverslun bæði í vafra og í appinu. Þegar þú ert búin að kaupa þjónustuna þá færð þú tölvupóst þar sem hægt er að nálgast kvittun. Getur einnig nálgast kvittunina þína svona - Sjá nánar hér
Í gegnum vafra á tölvu
1. Farið er inn á abler.io/shop og þar er hægt að leita eftir félagi, vöru eða deild. Það er einnig hægt að sía eftir m.a. staðsetningu og íþróttagrein.
- Velur síðan félagið og þjónustuna sem þú ætlar að skrá þig eða barnið þitt í.
- Ef þú ert ekki búin að skrá þig inn þá gerir þú það með því að smella á Innskrá í Abler uppi í hægra horninu. Mikilvægt er að þú skráir þig inn sem þú sjálfur.
2. Smellir á halda áfram í kaupferlinu og þá getur þú valið fyrir hvern þú ert að kaupa. Síðan er smellt á Greiðlsuferli.
3. Velur greiðslumáta, það getur t.d. verið greiðslukort, greiðsluseðlar eða frístundastyrkur.
- Ef félagið býður upp á afslátt og ef viðkomandi á rétt á afslætti þá kemur hann upp í kaupferlinu.
Ef um nýskráningu er að ræða mælum við með að þú niðurhlaðir appinu og skráir þig inn til að geta fylgst með dagskránni. Ef þú varst með aðgang fyrir kemur dagskráin sjálfkrafa í appið.
Í Abler appinu
Ef þetta er framkvæmt í appinu þá er smellt á markaðstorgið og svo er sama ferli framkvæmt.
Tengdar greinar:
Hvernig geri ég nýskráningu?
Hvernig fær barnið mitt Abler aðgang?
Forskráðir iðkendur (Greiða æfingagjöld)
Leitarorð: Námskeið, forráðamaður, frístundastyrkur, kaupferli, greiðslur.