Þú getur greitt reikninga fyrir æfingagjöld, námskeið og viðburði í Abler, annað hvort í appinu eða í tölvu í gegnum vafra.
ATH. Ef þú sérð reikning sem þú kannst ekki við, vinsamlegast hafðu samband beint við félagið til að fá nánari upplýsingar.
Í Abler appinu:
- Skráðu þig inn í Abler appið og farðu í prófílinn þinn (neðst í hægra horninu).
- Veldu Reikningar til að sjá yfirlit yfir ógreidda reikninga.
- Finndu reikninginn sem þú vilt greiða og veldu hann.
- Veldu greiðslumáta sem hentar þér best (t.d. kortagreiðslu).
- Ef þú vilt nota frístundastyrk:
- Auðkenndu þig á island.is með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
- Veldu upphæðina sem þú vilt nota af frístundastyrknum. Athugaðu að hún má ekki vera hærri en æfingagjölfin sjálf.
- Veldu síðan greiðslumáta fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.
Með því að velja körfuna getur þú séð heildarupphæð reikningsins og afslættir koma þar einnig fram.
Í vafra:
- Farðu www.abler.io/shop/ og skráðu þig inn.
- Veldu Þú átt ógreidda reikninga efst í hægra horninu.
- Finndu reikninginn sem þú vilt greiða og veldu Greiða.
- Fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka greiðslunni.
ATH. Ef þú ætlar að nota frístundastyrk, verður þú að auðkenna þig með íslenskri kennitölu á island.is með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
Til að ráðstafa frístundastyrk:
- Sláðu inn upphæðina sem þú vilt nota af frístundastyrknum. Athugaðu að upphæðin má ekki vera hærri en reikningsupphæðin sjálf. Veldu Staðfesta.
- Veldu greiðslumáta fyrir eftirstöðvarnar, ef einhverjar eru.
Aðstoð
Ef þig vantar aðstoð eða ert með einhverjar spurningar, bendum við á þjónustuver Abler abler@abler.io.
TENGDAR GREINAR
Leitarorð: greiðslur, frístundastyrkur, ógreiddur reikningur