Til að stofna endurnýjanlega áskrift þá er smellt á: 
þjónustuyfirlit -> Stofna -> Stofna áskriftarþjónustu 



Í kjölfarið opnast þessi gluggi



Nafn: Velja nafn sem birtist í vefverslun

Upplýsingar: Hérna er sett inn lýsing sem birtist kaupendum.

Tegund: Tegundin á þjónustunni, t.d. námskeið eða félagsgjöld

Flokkur: Mikilvægt er að velja réttan flokk

Tegund starfsemi: Ef ekkert á við þá velja "other"

Opið (Sýnilegt í vefverslun): Ef valið er ,,Opið'' þá þýðir það að þjónustan er sýnileg í vefverslun. Hægt er að breyta þessu eftir að námskeið er stofnað.

ViðtökureikningarPassa að setja inn réttan reikning hérna.


Tilkynning með tölvupóst: Sjá nánari leiðbeiningar hér



Þegar búið er að fylla allt út þá þarf að stofna Val:


Eitt val: Ef hakað er í eitt val getur kaupandinn aðeins valið einn kost af þessum þremur. Ef ekki er hakað í eitt val getur hann valið alla kostina.


Þegar smellt er á ,,Stofna val'' þá opnast eftirfarandi gluggi og hann er fylltur út.




Subscriptions options


Nafn: Í þessu dæmi er selt gull, silfur og brons. Þetta birtist í vefverslun sem kostir til að kaupa.


Áskriftartímabil:


Dæmi 1: Ef þú vilt að áskriftin endurnýjist í hverju mánuði þá velur þú 1 og stillir á mánuðir í áskriftartímabilinu. Ef þessi kostur er valinn þá endurnýjast áskriftin mánaðarlega. Svo er hægt að leika sér með þessar tölur eftir því sem hentar ykkur best


Dæmi 2: Ef þú vilt að áskriftin endurnýjist á 4 vikna fresti þá velur þú 4 og smellir á vikur í áskriftartímabil. Ef þessi kostur er valinn þá endurnýjast áskrifting á 4 vikna fresti. Svo er hægt að leika sér með þessar tölur ef því sem hentar ykkur best.


Fjöldi endurnýjana: Þýðir hvað þú vilt að áskriftin endurnýjist lengi í þessu dæmi er það 12 mánuðir. Það þýðir að áskriftin dettur út eftir 12 mánuði.


Binditími: Viðskiptavinur mun ekki geta sagt upp áskrift fyrr en að binditíma lýkur


Uppsagnarfrestur: Tíminn af áskriftinni sem þarf að líða eftir að viðkomandi segir upp áskrift.


Verð: Verð sett inn


Virkja á:


Tveir kostir

 

NR 1: áskriftin tekur í gildi um leið og viðkomandi aðili gengur frá fyrstu greiðslu.


NR 2: Áskriftin tekur í gildi mánuðinn eftir að viðkomandi aðili hefur gengið frá greiðslu.


Skráning opnar og lokar: Þarna er sett inn hvenær skráning opnar og hvenær hún lokar.


Fjöldatakmörkun: Ef það takmarkanir á framboði þá veljið þið fjöldatakmörkun og stimplið inn hvað eru mörg laus pláss


Biðlisti: Hægt er að setja á biðlista.


Staða: Opið þýðir að þetta sé sýnilegt í vefverslun en lokað þýðir að enginn sér þetta nema þið í stjórnendakerfinu.


Undirhópar: Gott er að velja create new group og velja undirhópinn gull fyrir gull og silfur fyrir silfur o.sfrv. 


Inniheldur aðgang: Tilgreindu þann aðgang sem þessi áskrift veitir, ásamt fjölda heimsókna ef á við.


Þarf aðgang að: Veldu þann aðgang sem notandi þarf að hafa til þess að kaupa þessa áskrift. Notandi getur ekki keypt þess áskrift nema hann eigi aðra áskrift með þessum aðgangi.




Svona lítur þetta út í vefversluninni:



Sýnidæmi 2


Á myndinni fyrir neðan má sjá hvernig hvernig týpiskar áskriftir líta út hjá líkamsræktarstöð:


Svona lítur þetta út í vefverslun: