Í einstaka tilfellum kemur sú staða að ekki tókst að skuldfæra kort. Ástæðan er yfirleitt að ekki var heimild inn á kortinu, eða að kort er útrunnið.
Skuldfærsla mistókst - hvað gerir kerfið?
Almennt reynir kerfið að skuldfæra kort í greiðsludreifingu 4 sinnum, eða 7, 8, 9 ,12 hvers mánaðar
Ef það gengur ekki eftir þá er greiðsluseðill sjálfkrafa stofnaður í heimabanka viðkomandi korthafa fyrir viðkomandi greiðslu (ef greiðandi er undir 18 ára þá er sent á foreldra skv. fjölskyldunúmeri).
Fyrir næstu greiðslu í áskrift/eða greiðsludreifingu reynir kerfið fyrst alltaf að skuldfæra á kortið.
Aðgerðir sem eru í boði
Reyna skuldfærslu núna (þá er reynt að skuldfæra kortið, svar berst strax hvort tekist hafi að skuldfæra)
Færa færslu á næsta gjalddaga, þá verður reynt að skuldfæra viðkomandi færslu 7. næsta mánaðar. (Viðkomandi verður því með 2x færslur á kortið 7. Næsta mánaðar sé hann með fleiri færslur í greiðsludreifingu fyrir viðkomandi kaup).
Stofna greiðsluseðil handvirkt. (sjá leiðbeiningar um það hér)
Sjá leiðbeiningar um innheimtuferlið ef greiðsluseðill er ekki greiddur
Til að sjá lista yfir þá sem eru í skuldfærsla mistókst er smellt á greiðslur og valinn viðeigandi viðtökureikningur, tímabil þarf að vera í lagi og í staða er smellt á skuldfærsla mistókst. Ef þetta er gert þá birtast allir þeir sem eru í skuldfærsla mistókst/split failed. Til að framkvæma aðgerðir 1 og 2 sem nefndar eru hér að ofan er smellt á kvittunarnúmerið.
Væntanlegt:
Eigandi korts fær sjálfkrafa tilkynningu í símann og tölvupóst um að ekki hafi tekist að skuldfæra kort. Í þessum skilaboðum sendum við link þar sem viðkomandi getur gengið frá greiðslu og/eða uppfært kortaupplýsingar.