Í Abler getur þú stýrt hvaða aðgang starfsmaður hefur. Aðgangsréttindi skiptast í eftirfarandi flokka:

  • Stjórnenda- og greiðsluréttindi: Fyrir stjórnendur félags sem þurfa yfirsýn yfir allt félagið.

  • Greiðsluréttindi: Fyrir þjálfara sem þarf að rukka fyrir mót í gegnum Abler Pay. Gert í gegnum deildir en ekki félag.

  • Stjórnendaréttindi: Fyrir yfirþjálfara sem má ekki sjá greiðslur.

  • Bókararéttindi: Veitir aðgang að bókhaldsflipanum undir Greiðslur. Bókari getur stofnað bunka, stillt bókhaldslykla og sótt bókhaldsgögn.

  • Stjórnenda-, greiðslu- og bókararéttindi: Veitir fullan aðgang að greiðslum og yfirsýn yfir allt félagið eða deildina.

  • Þjálfararéttindi: Veitir þjálfurum/kennurum/leiðbeinindum aðgang að ákveðnum flokknum. Sjá meira hér


 Hvernig á að bæta stjórnanda við félag

  1. Farðu í félagið sjálft og smelltu á Breyta félagi.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.

  4. Veldu viðeigandi réttindi eins og lýst er hér að ofan.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang.



 Hvernig á að bæta stjórnanda við deild

  1. Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang starfsmannsins.

  4. Veldu viðeigandi réttindi.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi. Ef starfsmaðurinn er ekki með Abler aðgang þá fær hann boð á netfangið sitt um að stofna aðgang. 



 Hvernig á að bæta greiðsluréttindum við þjálfara

  1. Farðu í viðkomandi deild, smelltu á þjónustuyfirlit og breyta svo Breyta deild rétt eins og í dæminu hér að ofan.

  2. Í glugganum sem opnast, veldu Stjórnendur.

  3. Skrifaðu inn netfang þjálfarans

  4. Veldu "Greiðslur" sem réttindi.

  5. Smelltu á Stofna admin til að staðfesta.

  6. Starfsmaðurinn þarf að skrá sig út og aftur inn til að breytingin taki gildi.