1.Fyrsta skref er að fara í leitarstikuna efst uppi. Hægt er að stimpla inn nafn, netfang eða kennitölu iðkanda sem á að fá endurgreitt. ATH leitið af iðkandanum ekki forráðamanni.
Næst smellið þið á upphafstafina eða myndina við hliðina á nafni iðkandans.
2. Í kjölfarið opnast þessi sýn og þar er smellt á reikningar.
3. Næst leitið þið eftir reikningnum sem viðkomandi vill fá að borga fyrir og smellið á kvittunarnúmerið til að komast inn í reikninginn.
4. Næst er smellt á stofna færslu. En það er gert með því að fara í þrjá punktana við hliðina á ógreitt - skoða kvittun.
5. Í kjölfarið opnast þessi gluggi þar sem þið veljið undir flokkar færslu: Kort(debit/kredit)
- Í reitnum aðstandendur ætti kennitala greiðanda að koma sjálkrafa upp eða aðstandandi. Þið getið einnig slegið inn kennitölu eftir því sem á við.
- Í upplýsingar reitnum setjið þið skýringu t.d Félagsjöld xxxx (þetta birtist á kvittun kaupanda)
- Í upphæð reitinn skrifið þið upphæðina sem er útistandandi þannig að eftirstöðvar reiknings verða 0 kr.
Þegar þetta er allt klárt er smellt á bæta við færslu.
6. Því næst opnast gluggi þar sem þarf að setja inn kortanúmer, gildistíma og csv upplýsingar. Svo er smellt á Halda áfram og í kjölfarið fær eigandi kortsins SMS til að staðfesta kaupinn.