Hugmynd að tölvupósti sem hægt er að senda út á ykkar fólk;
Við erum að innleiða Abler Pay af krafti í allt félagið til að auðvelda yfirsýn með mótaskráningu, fjárumsýslu (innheimta á mótsgjöldum) o.s.frv. Abler Pay einfaldar starf þjálfara og gjaldkera og almennt gerir starfsumhverfi okkar faglegra og skilvirkara þegar kemur að umsýslu fjármuna.
Innleiðing er einföld og þjónustan er í daglegri notkun hjá fjölda þjálfara og gjaldkera um allt land.
Hér er stutt kynningarmyndband og hér má sjá frekari kynningu ásamt ítar- og kennsluefni.
Við erum í því að tengja alla okkar reikninga í kerfinu og munum gefa þjálfurum, gjaldkerum flokka og starfsmönnum kennslu og réttindi á þessar þjónustur eftir því sem við á.
Næsta innheimta: Ef þið eruð að fara innheimta fyrir mót, skemmtikvöld eða slíkt, endilega verið í sambandi sem fyrst svo við getum komið ykkar tengingu framar í röðina.