Með því að nota afsláttarprófíla í Abler er hægt að setja upp sjálfvirka systkinaafslætti. Við kaup á þjónustu sem tengd er við afsláttarprófíl, býr kerfið til afsláttarmiða (kúpona) sem virkjast sjálfkrafa við næstu kaup innan sömu fjölskyldu.


Hvernig virka systkinaafslættir?

  1. Kaup 1: Fyrsta barnið er skráð og forráðamaður greiðir fullt gjald.
  2. Kaup 2: Annað barn innan sömu fjölskyldu er skráð – afsláttarmiði virkjast sjálfkrafa og veitir t.d. 10% afslátt af heildarupphæð reiknings.


Afslátturinn byggir á því að börnin séu á sömu fjölskyldukenntölu skv. þjóðskrá (með sama lögheimili).



Skref 1: Stofna afsláttarprófíl

  1. Farið í Fjármál > Afsláttur > Stillingar 
  2. Smellt á "Nýr afsláttur" > Velja afsláttartegund "Sjálfvirkir afslættir"
  3. Fyllt út eftirfarandi:

Grunnstillingar

  • Nafn: T.d. "Systkinaafsláttur"
  • Persónuvernd: Systkini
  • Gildistegund og gildi: % afsláttur (t.d. 10%) eða upphæð (t.d. 3.000kr.)


Takmörkun

  • Ekkert: Afsláttur gildir á allar þjónustur
  • Sama deild: Afsláttur gildir aðeins innan sömu deildar
  • Fjöldeild: Afsláttur gildir í öðrum deildum
  • Margir hópar: Afsláttur gildir í öðrum flokkum
  • Fjölnámskeiða: Afsláttur gildir í öðrum þjónustum en þeim sem var keypt fyrst


Reiknireglur

  • Ef "Sameina upphæðir" er ekki hakað: afsláttur reiknast eingöngu af seinni kaupum
  • Ef "Sameina upphæðir" er hakað: afsláttur reiknast sem vegið meðaltal úr síðustu tveimur kaupum

    Dæmi:


    T.d. Ef afsláttur er 10%, og reikningur 1 upphæð er 50.000, reikningur 2 upphæð er 10.000 og reikningur 3 upphæð 30.000, verður afslátturinn reiknaður eftirfarandi: 

    Kaup1 = 0
    Kaup2 = (50.000 + 10.000) / 2 * 10% = 3.000
    Kaup3 = (10.000 + 30.000) / 2 * 10% = 2.000


ATH: Það skiptir ekki máli hvor kaupin eru framkvæmd á undan við kaup 2. Afsláttur er sá sami því það er reiknað vegið meðaltal af báðum kaupum. Við kaup 3 er síðan afsláttur reiknaður af reikning 2 og reikning 3 og því getur verið munur á afslætti eftir því hvort var greitt á undan. Greiðandi fær því meiri afslátt með því að greiða hærri upphæðina seinna, þ.e.a.s þetta á við ef hann kaupir 3 þjónustur sem falla undir afslættina. Ef hann kaupir aðeins 2 þjónustur þá skiptir það ekki máli.


Tímasetningar

  • Virk síðan: Upphaf útgáfu kúpona / Hvenær afslættir taka gildi
  • Virk til: Lok útgáfu kúpona / Hvenær afslættir hætta að myndast
  • Gildistími: Hvenær allir kúponar renna út



Skref 2: Tengja afsláttarprófíl við þjónustu





Þjónusta

  1. Velja deild sem afslátturinn á að vera virkur í. 
  2. Velja þjónustur sem afsláttur á að vera virkur í.




Bæta við afsláttarprófíl seinna í þjónustu

  1. Farið í þjónustu sem á að bjóða afslátt
  2. Veljið einn eða fleiri afsláttarprófíla á þjónustuna
  3. Vistað

Athugið: Afslátturinn virkjast ekki afturvirkt ef forráðamaður hefur þegar greitt áður en afsláttur var tengdur.

Sjá grein: Forskrá iðkanda með afslætti.

Dæmi:

  • Barn 1 skráist og greiðir fullt verð
  • Barn 2 skráist á öðru námskeiði og fær 10% afslátt


Ef "Sameina upphæðir" er virkt, getur afslátturinn breyst eftir því í hvaða röð þjónustur eru keyptar


Tengt efni:

  • Forskráning iðkanda með afslætti
  • Hengja afsláttarprófíl við þjónustu
  • Afsláttur milli deilda vs. innan deildar