Abler Pay
Hægt er að taka við greiðslum í gegnum Sportabler, eins og skráningar í mót, skemmtikvöld, rútuferðir og fleira.
Hægt er að skilyrða greiðslu við skráningu, nota sjálfvirkar áminningar og gera greiðsluumsýslu skilvirkari fyrir alla sem koma að starfinu.
Yfirsýn: Þjálfarar, ráð og stjórnendur hafa skýra yfirsýn yfir skilvirkni greiðslna. Í fyrstu útgáfu er hægt að greiða með debet- og kreditkorti. Einnig er hægt að skrá greiðslur sem inntar eru af hendi með reiðufé eða inneign (t.d. úr fjáröflun), svo slíkum tilvikum sé skilmerkilega haldið til haga.
Nánari útskýring í myndbandinu fyrir neðan.
Verð fyrir Abler Pay þjónustu: Verð fyrir þessa þjónustu er innifalið í færslugjöldum. Færslugjöld eru samningsatriði á milli aðila. Hægt er að velta þessum gjöldum yfir á greiðendur ekki ólíkt því sem þekkist með greiðsluseðla í heimabankanum.
Hvernig tengi ég Abler Pay: Sendu tölvupóst á netfangið pay@sportabler.com til þess að tengja Abler Pay við þitt félag. Það er misjafnt eftir félögum hvernig þessu er háttað, en gert er ráð fyrir að félög, deildir, ráð, og/eða gjaldkerar einstakra flokka geti gengið frá tengingu hafi þeir réttindi til þess.
Uppgjörstími 2 virkir dagar: Kortafærslur sem sendar eru inn fyrir kl. 20:30 virka daga eru greiddar út annan virka dag þar á eftir. Yfirlitið í Sportabler er í rauntíma, en daginn eftir að kreditkortafærslur eru sendar inn, er staðfesting á sendingu send frá Korta með tölvupósti til félags.
Uppgjör fer fram á íslenskum bankadögum, virkum dögum og ekki um helgar né frídögum.
Fyrirkomulag á sendingu uppgjörsyfirlita og daglegs uppgjörs á færslum er eftirfarandi: